Jú allt rétt hjá ykkur... ég fór í sveitina yfir Versló... fór í
Selvík (rétt hjá Þrastarskógi) með alla yndislegu púkana mína og
þar var sko stuð..... enda er hægt að gera næstum því hvað sem er
þarna... það var farið á bát, spilað pool, farið í pool(sundlaug),
réttara sagt Gottalaug á Selfossi.. eins og Rómeó kallar hana..
hehehe.. hann er bara snillingur.. hehe.. reyndar þeir allir.
Minn elsti, Gunnz, stjórnaði og leiddi púkahópinn í hina
ýmsu leiki og aðra skemmtan og stóð sig eins og hetja við báða
bræður sína á meðan ég sá um heildarskipulagningu leikanna...
Gunnz sýndi svo nýja og frábæra hlið á sér þessa helgi að pabbinn
gamli(ÉG!!!!!) var agndofa... hann er orðinn svo stór að ég hlýt
alveg að verða 100 ára... hehehe... þó klárlega ekki í anda..

Daníel, gleymda miðjubarnið...(klárlega ekki sagt í neinni
kaldhæðni vitandi það af eigin raun.... hehehe), var svo á útopnu í
öllum leikjunum og sá til þess að allir skemmtu sér eins og best
væri á kosið... hann á svo marga gullmola sem bara fyrir
tilviljun(að maður heldur...
) detta útúr honum að maður gæti
legið í krampakasti í margar vikur....
Aftur að titlinum... það var á sólríkum degi sem ástin blossaði
í sveitinni... svona eins og sveitarómans getur best verið... það
kom nefnilega aukagestur í bústaðinn við hliðina á okkar... og með
því pari var lítil skotta(stelpa) með rosalega flott nafn,
Tanía(veit samt ekki hvort ég sé að skrifa það rétt). Hún fer
eitthvað að spyrja hvaða krakkar séu þarna og fær eftirfarandi
upplýsingar, Gunnz, Daníel og Rómeó. Hún spyr strax... "hvar
er Rómeó??"... ég er staddur fyrir neðan bústaðinn þegar skottan
með ljósu lokkana kemur askvaðandi og spyr mig hvort þetta sé Rómeó
og bendir á yngsta afkvæmið mitt.. og ég bara.."Já???"... hún
gengur að honum og horfir á hann.... segir svo "Hææææ.... " og
brosir sýnu breiðasta... hehe.. minn gaur tekur hana bara undir
arminn og voru þau óaðskiljanleg það sem eftir lifði ferðinni....
veit ekki hvaðan hann hefur þetta.... en hann stendur alla vegna
undir nafni.... þau héldust í hendur og kysstust meira að segja...
............. spurning hvort ég verði afi fyrir aldur fram
eða.... hehehe.... 
Það má alveg segja að þetta hafi verið smá
fjölskyldureunion... því Frú Unnur (systir mín) var þarna mætt með
sinn ektamann (Sigurð) og tvíbbana sína, Foli frændi (Þorgils) var
þarna með sýna sívaxandi fjölskyldu... og nei.. ég er ekki með
þessum orðum að segja að hann sé að fitna... tók bara svona til
orða.. og saman skemmtum við okkur konunglega í rosalega góðu veðri
og yndislegheitum....
Until next....
Röggz... Best Before End er enn næstum því tilbúin...
hehehe....